Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Námskeið 2004
Námskeið 2005
Námskeið 2006
Námskeið 2007
Námskeið 2008
Námskeið 2009
Námskeið 2010
Myndir af námskeiði 2010
Námskeið 2011

Sumarnámskeiðið Leikhús möguleikanna

í Gerðubergi 7. - 25 júní 2010

  

Hið árlega sumarnámskeið Möguleikhússins hófst í Gerðubergi mánudaginn 7. júní. Þátttakendur að þessu sinni eru 11 talsins, á aldrinum 8-12 ára. Leiðbeinendur eru  Pétur Eggerz. og Margrét Pétursdóttir. Þeim til aðstoðar eru Bergljót Pétursdóttir, Birgitta Rós Laxdal og Pétur E. Pétursson.

 

SMELLIÐ HÉR

TIL AÐ SKOÐA MYNDIR

AF NÁMSKEIÐINU

 

1. dagur - 7. júní

Við hófum námskeiðið okkar kl. níu í morgun í Gerðubergi. Ekki voru alveg allir þátttakendur mættir, veikindi og mismunandi tímasetning skólaslita réðu þar nokkru. En það var byrjað á nafnaleikjum og síðan farið í ýmsa spuna. Hópurinn virtist strax ná nokkuð vel saman og gaman að sjá útkomuna úr spununum.

 

2. dagur - 8. júní

Enn voru einhver forföll í dag, mismunandi tímasetningar á skólaslitum í höfuðborginni þvælast svolítið fyrir okkur. En við byrjuðum samt af fullum krafti. Eftir stuttar upphitunaræfingar fórum við í spunaleiki. Æfingin um puttalinginn sveik ekki fremur en fyrri daginn. Síðan bjuggum við til sögu þannig að hver bætti við nýrri setningu á eftir þeim sem á undan var. Að því loknu þurfti hópurinn að leika söguna, sem fyrst virtist ómögulegt en gekk bráðvel upp á endanum. Eftir hádegi var farið í blindingsleik þar sem reyndi á traust þátttakenda hvers til annars.

 

3. dagur - 9. júní

Það var haldið áfram í allskonar spunum í dag. Það voru unnir leikþættir út frá laustengdum stikkorðum, eins og tröll, gráta, blár, draugur, hnerra og grænn, farið í ferðalög þar sem náttúröflin sköpuðu httur, þekkt ævintýri túlkuð í ljósmyndauppstillingum og sögur af Sæmundi fróða leiknar um leið og þær voru lesnar. Eftir hádegi var hlustað á söguna um Kolrössu krókríðandi og hún síðan leikin í tveimur hópum.

 

4. dagur - 10. júní

Eftir að hafa farið í nokkra stutta upphitunarleiki í Gerðubergi tókum við strætó í Þjóðminjasafnið þar sem við skoðuðum okkur um í rúman klukkutíma. Verkefnið m.a. að finna athyglisverða hluti, hugsa okkur hvaða persónur hefðu átt þá og hvernig þeir hefðu verið notaðir. Þegar við komum aftur í Gerðuberg sögðum við frá hlutunum og persónunum sem urðu fyrir valinu. Að því loknu voru voru búnir til spunaþættir þar sem þessar þjóðminjapersónur komu við sögu.

 

5. dagur - 11. júní

Það var byrjað á að fara í upphitun og spunaæfingar, en klukkan tíu var boðið upp á leiksýningu í Gerðubergi. Möguleikhúsið var að sýna Langafa prakkara fyrir stóran hóp af leikskólabörnum og við fengum að kíkja með á sýninguna. Eftir að henni lauk var skipt í hópa sem héldu áfram að vinna út frá sögunni um Kolrössu krókríðandi. Þar kom m.a. fram vísir að nútímaútgáfu af sögunni. Eftir hádegið hlustaði hópurinn á söguna um Mjaðveigu Mánadóttur og spann út frá henni. Að endingu voru búnar til sjónvarpsauglýsingar um ferðir til ævintýraheima.

 

6. dagur - 14. júní

Hress og endurnærð eftir helgina hófum við daginn að vanda á nokkrum upphitunarleikjum. Svo var skipt í hópa sem bjuggu til spuna eftir stikkorðum á hugmyndamiðum og dagblaðafyrirsögnum. Þá var haldið áfram að vinna með hluta af sögunni um Kolrössu krókríðandi í breyttu formi. Ýmsar hugmyndir þar sem lofa góðu. Inn á milli var skotið brúðustjórnunarspuna og fleiri skemmtilegum æfingum.

 

7. dagur - 15. júní

Við hófum daginn á að fara í nokkrar æfingar til að þjálfa okkur betur í látbragði með hjálp ímyndunaraflsins. Vorum að handleika ósýnilega hluti, smáa sem stóra, stök og í hópum. Þá voru unnir spunar eftir hugmyndamiðum og eins voru leikgerðir nokkrir brandarar. Eins og undanfarna daga héldum við áfram að þróa í hópum okkar útgáfu af sögunni um Kolrössu krókríðandi.

 

8. dagur - 16. júní

Við fengum að njóta fjölbreyttra hæfileika þátttakenda á sérstakri hæfileikasýningu í morgun þar sem boðið var upp á dans, brandar, fimleika og hljóðfæraleik. Að því loknu fengu krakkarnir að spreyta sig á að´túlka fyrirlestur á bullmáli en síðan tóku leikspunarnir völdin. Það voru unnir skondnir leikþættir eftir fyrirsögnum úr dagblöðum og að sjálfsögðu var haldið áfram að prjóna við Kolrössusöguna, sem óðum er að taka á sig skýrari myns.

 

9. dagur - 18. júní

eftir stutt þjóðhátíðarfrí mætti hópurinn gallvaskur til leiks. Það voru nokkur forföll í dag, átta krakkar sem mættu en voru þeim mun duglegri. Okkur bættist líka leiðsauki í dag, myndlistarkonan Sari, sem ætlar að aðstoða okkur við útlitið á sýningunni. Við byrjuðum daginn á að renna yfir það sem æft var á miðvikudag og bæta aðeins við. Eftir hádegið fengu krakkarnir síðan að gramsa í búningum úr safni leikhússins. Síðan var farið út í fullum skrúða og boðið upp á götuleikhús á torginu fyrir utan Gerðuberg.

 

10. dagur - 21. júní

Eftir helgarfrí mætum við endurnærð til síðustu vikunnar á námskeiðinu. Við urðum að vera í sal á neðri hæð Gerðubergs þar sem húsið var að miklu leyti lagt undir ráðstefnu. Við rifjuðum upp það sem við æfðum fyrir helgi og héldum áfram að prjóna við. Milli æfinga voru búnir til spunar þar sem þekkt ævintýrir voru færð til nútímans. Bergljót og Birgitta æfðu síðan nokkur dansspor með krökkunum í lokin.

 

11. dagur - 22. júní

Nú eru æfingar á leikritinu okkar að komast á fullt skrið. Við sátum við að skrifa niður texta í morgun til að festa betur niður hlutverk hvers og eins. Svo var verið að vinna í leikmunum og búningum. Það var rennt tvisvar í gegnum allt saman, þó það setti svolítið strik í reikninginn að tveir leikarar voru lasnir heima. Eins og í gær enduðum við daginn á danssporunum.

 

12. dagur - 23. júní

Við vorum aftur komi upp í stóra salinn í morgun og nú voru allir mættir. Við æfðum allt leikritið og reyndum að tína inn þá búninga sem komnir eru. Krakkarnir stóðu sig einstaklega vel og sýndu ótrúlega þolinmæði þegar fara þurfti gegnum sömu atriðin aftur og aftur. Sólskinið var nýtt til að fara út í hádeginu og svo haldið áfram að æfa

 

13. dagur - 24. júní

Þá er það lokaspretturinn. Við renndum leikritinu okkar þrisvar sinnum í dag  Þetta fær sífellt á sig sterkari svip fullbúinnar leiksýningar. Við erum nú búin að ramma sviðið inn með svörtum tjöldum til að gera salinn enn leikhúslegri.. Það er greinilega farinn að fara fiðringur um mannskapinn og spennan fyrir morgundeginum eykst jafnt og þétt.

 

1 4. dagur - 25. júní

Stóri dagurinn er runninn upp. Við mættum klukkan ellefu í Gerðuberg. Byrjuðum strax á að æfa . Generalprufan gekk eins og til var ætlast og allt small saman.Ákveðið var að gefa sýningunni nafnið "Þarna plötuðum við ykkur". Eftir hádegishlé var komið að fyrri sýningu dagsins. Það var stór hópur barna af leikjanámskeiðum í Breiðholti sem kom til að horfa. Leikararn.ir stóðu sig vel og áhorfendur virtust skemmta sér hið besta. Þá var hlé fram að seinni sýningunni. Tíminn nýttur í limbókeppni og annað skemmtilegt. Klukkan fimm mættu svo foreldrar og aðrir aðstandendur að sjá seinni sýningu dagsins. Enn sýndu börnin hvers þau eru megnug og stóðu sig eins og hetjur. Við þökkum frábært samstarf og vonumst til að hittast aftur næsta sumar.

Möguleikhúsið | Sími 562 2669