Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Stjórn leikhússins
Hvers vegna barnaleikhús
Saga leikhússins
Framtíðarsýn
Sýningar frá upphafi
Pétur Eggerz

 

Pétur Eggerz er fæddur í Reykjavík 1960. Hann stundaði nám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands í nokkur ár áður en hann hélt til leiklistarnáms í Lundúnum. þaðan útskrifaðist hann frá The Webber Douglas Academy of Dramatic Art 1984.

Hann lék um fjögurra ára skeið hjá Leikfélagi Akureyrar, m.a. í sýningunum Piaf, Silfurtúnglið, Piltur og stúlka, Fiðlarinn á þakinu og Emil í Kattholti. Hann hefur einnig tekið þátt í sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Alþýðuleikhúsinu. Þá lék hann í kvikmyndunum Hvítir mávar, Sódóma Reykjavík, Veggfóður, Karlakórinn Hekla og Opinberun Hannesar. Auk þess hefur hann gert töluvert af því að leikstýra hjá skólum og áhugafélögum.

Pétur er einn af stofnendum Möguleikhússins og hefur starfað þar frá árinu 1990 sem leikari, leikstjóri og höfundur. Hann hefur m.a. skrifað leikritin Smiður jólasveinanna, Umferðarálfurinn Mókollur, Ævintýrabókin, Ekki svona! (með Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni), Hvar er Stekkjarstaur? og Jónas týnir jólunum.

 

Pétur situr í stjórn Möguleikhússins.

Möguleikhúsið | Sími 562 2669