Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Stjórn leikhússins
Hvers vegna barnaleikhús
Saga leikhússins
Framtíðarsýn
Sýningar frá upphafi

Framtíðarsýn

Frá upphafi hafa aðstandendur Möguleikhússins haft að leiðarljósi að vinna innan þess fjárhagsramma sem svigrúm leyfir hverju sinni. Þannig hefur starfseminni verið sniðinn stakkur eftir vexti og ávallt verið unnt að standa við gerðar áætlanir. Leikhúsið hyggst starfa á þeim grunni áfram og gæta þess að reisa sér ekki hurðarás um öxl.

 

Fastráðnir leikarar

Möguleikhúsið stefnir á að fastráða 5 - 6 leikara. Takmarkað fjármagn leikhússins hefur sett því skorður hvað varðar ráðningu á leikurum og verið þess valdandi að orðið hefur að takmarka sýningar við aðeins 2 - 3 leikara. Þar sem sýningar leikhússins fara fram á daginn og aðeins hefur verið unnt að ráða leikara á sýningarkaupi, en sýningar geta verið stopular, hafa myndast árekstrar við aðra dagvinnu leikaranna. Hefur þetta fyrirkomulag sett leikhúsinu þröngar skorður. Með fleiri leikurum á föstum launum verður hægt að tryggja aðgang að leikurunum auk þess sem val á leikverkum verður ekki jafn háð fjölda leikara og verður fjölbreytnin þar af leiðandi meiri fyrir vikið.

 

Tryggja gæði, fjölbreytni og metnað

Möguleikhúsið vill tryggja börnum og unglingum sömu gæði, fjölbreytni og metnað í leiksýningum og þykir sjálfsagður hlutur í leiksýningum fyrir fullorðna. Nokkur misbrestur virðist vera á því að skilningur sé á þessu. Má í því sambandi benda á samanburð á þeim fjármunum sem Möguleikhúsið hefur annars vegar hlotið í styrkjum og leikhús sem einbeita sér að verkum fyrir fullorðna hins vegar. Það er sjálfsögð jafnréttiskrafa að leikhús fyrir börn og unglinga hafi sama vægi og önnur leikhús í landinu og litið verði á það sem sjálfsagðan hlut að sama fjármagns sé krafist í rekstur þess.

 

Efla samstarf

Möguleikhúsið vill tryggja að börn og unglingar hafi greiðan aðgang að leiksýningum til jafns á við fullorðna. Með því að efla enn frekar samvinnu við leik- og grunnskólayfirvöld ætti leikhús-upplifun barna að verða órjúfanlegur hluti skólastarfsins. Mikilvægt skref í þá átt er "Barnaleikhúsmessa" sem efnt hefur verið til í Reykjavík. Þar getur skólafólk kynnt sér þær sýningar fyrir börn og unglinga sem í boði verða á komandi leikári.

Möguleikhúsið | Sími 562 2669