|
Sumarnámskeiðið Leikhús möguleikanna
í Gerðubergi 6. - 24 júní 2011
Hið árlega sumarnámskeið Möguleikhússins hófst í Gerðubergi mánudaginn 6. júní. Þátttakendur að þessu sinni eru 15 talsins, á aldrinum 8-12 ára. Leiðbeinendur eru Pétur Eggerz. og Margrét Pétursdóttir. Þeim til aðstoðar eru Bergljót Pétursdóttir, Birgitta Rós Laxdal og Pétur E. Pétursson.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDIR AF NÁMSKEIÐINU
1. dagur - 6. júní
Það voru 12 krakkar sem mættu á námskeiðið í dag, en við eigum von á 3 til viðbótar á morgun. Eftir stutt spjall var farið í nafnaleiki og eftir hádegið blindingsleik sem vakti mikla lukku. Endað á sprellfjörugum hópspuna.
2. dagur - 7. júní
Dagurinn hófst á nokkrum léttum upphitunarleikjum þar sem þurfti meðal annars að bregða sér í hlutverk uppvakninga og samúræja. Að því loknu æfðum viðp okkur í að búa til sögur í sameiningu og fengum síðan að sjá þrjár bráðskemmtilegar útgáfur af sögu um syngjandi hurð. Eftir hádegið var farið í seinni hluta blindingsleiksins frá í gær, hlustað á sögu eftir H C Andersen og farið í stutta sirkusspuna.
3. dagur - 8. júní
Við fórum í heimsók í Borgarleikhúsið í dag þar sem við fengum að skoða króka og kima baksviðs. Nutum þar góðar leiðsagnar Hafliða Arngrímssonar. Einna mesta athygli vakti að sjá þar sem verið var að búa til leikmynd og búninga fyrir Galdrakarlinn í Oz. Fórum í smá spæjaraleiðangur í Kringluna á heimleiðinni þar sem verkefið var að skoða áhugaverðar persónur sem á vegi okkar urðu. Eftir hádegið var farið í spuna byggða á sögunni sem við lásum í gær um drenginn sem kunni ekki að skjálfa.
4. dagur - 9. júní
Eftir að hafa farið í nokkrar stuttar morgunupphitunaræfingar fengum við að slást í hóp með stórum hóp leikskólabarna sem voru að horfa á leiksýninguna Gýpugarnagaul í Gerðubergi. Eftir hádegi var spunnið út frá fyrirsögnum úr dagblöðum og urðu við það til nokkrir bráðskemmtilegir leikþættir. Þá hlustuðum við saman á söguna um Næturgalann og enduðum daginn á að færa hluta þeirrar sögu í leikbúning í þremur hópum.
5. dagur - 10. júní
Það var unnið af miklum krafti í dag. Eftir upphitun var farið í spegilæfingu þar sem krakkarnir sýndu mikla einbeitingu og að því loknu í spunaæfinguna sívinsælu um puttalinginn. Svo var skipt í hópa þar sem unnir voru leikþættir út frá hugmyndamiðum með fjórum stikkorðum. Eftir það var haldið áfram að vinna með söguna um næturgalann. Unnið í þremur hópum með seinni hluta sögunnar. Þar með var fyrstu viku námskeiðsins lokið og komið að löngu helgarfríi.
6. dagur - 14. júní
Eftir langt og gott helgarfrí hittumst viða aftur í Gerðubergi. Fórum í stutta upphitunarleiki en síðan beint í spunana. Fyrst var það hættuspuni þar sem tveir hópar léku ferðalanga sem lentu í fimm mismundandi hættum, allt frá kviksyndum til eldgosa. Síðan var skipt í þrjá hópa sem fengu hugmyndamiða með þremur orðum sem þau áttu að flétta samana við eitthvað úr sögunni um næturgalann. eftir hádegið lásum við söguna Snædrottninguna sem síðan var leikin í þremur hlutum af jafn mörgum hópum.
7. dagur - 15. júní
Við byrjuðum daginn á nokkrum einbeitingarleikjum þar sem krakkarnir stóðu sig með afbrigðum vel. Síðan komu skondnir spunar út frá dagblaðafyrirsögnum, en að því loknu var haldið áfram að spinna út frá sögunni um Snædrottninguna. Einbeittum okkur að tveimur afmörkuðum hlutum sögunnar og fengum margar góðar hugmyndir. Í lok dags var farið í óundirbúinn spuna þar sem túlkur þurfti að þýða fyrirlestur á bullmáli.
8. dagur - 16. júní
Fyrst á dagskránni í dag var hæfileikasýning þar sem þeir sem það vildu gátu látið ljós sitt skína á ýmsum sviðum. Við fengum að sjá töfrabrögð og dansa, heyra brandara, söng og hljóðfæraleik. Eftir það rifjuðum við aðeins upp það helsta úr spunum fyrri daga upp úr Snædrottningunni en skiptum síðan í tvo hópa sem unnu með tvo nýja kafla úr sögunni. Eftir hádegið var svo æfður ræningjadans undir stjórn Bergljótar en að endingu skipt í tvo spunahópa sem komu með sína útgáfu hvor af lokakafla Snædrottningarinnar.
9. dagur - 20. júní
Þá er síðasta vika námskeiðsins okkar hafin. Við byrjuðum á að vinna fyrst í þremur hópum með þrjá fyrstu hluta sögunnar um Snædrottninguna. Náðum að þróa þá heldur lengra en síðast. Um hádegið bættist lmyndlistrkonan Sari í hópinn, en hún ætlar að hjálpa okkur með útlit sýningarinnar. Eftir hádegishlé voru dansspor ræningjanna æfð af krafti. Byrjuðum svo aðeins að vinna í næstu þáttum sögunnar áður en við hættum.
10. dagur - 21. júní
Það var haldið áfram í morgun þar sem frá var horfið í gær með spunavinnuna úr Snædrottningunni. Það var unnið stíft í allan dag við að þróa áfram senurnar úr sögunni. Okkur bættist enn liðsauki því dansneminn Tryggvi Geir er kominn til að aðstoða okkur enn frekar við dansatriðin. Hugmyndir um búninga eru líka að byrja að pússlast saman.Við ákváðum að lengja vinnudaginn um klukkutíma, verðum að til kl. 15 þessa síðustu æfingadaga til að vinna upp frídagana í síðustu viku.
11. dagur - 22. júní
Það er unnið stíft þessa síðustu daga námskeiðsins. Við byrjuðum á að renna yfir allt það sem gert var í gær og var aðdáunarvert hversu vel börnin mundu það sem verið var að gera. Síðan var haldið áfram að vinna tvo þætti sögunnar til viðbótar. Það þurfti að taka vel eftir og vera með einbeitinguna á hreinu. Það var búið að hengja upp sviðstjöldin í stóra salnum í Gerðubergi, sem gaf þessu öllu dálítið meiri leikhústilfinningu. Eins og í gær héldum við áfram til kl. þrjú og voru allir orðnir sæmilega þreyttir að vinnudegi loknum.
12. dagur - 23. júní
Það má segja að nú sé allt á suðupunkti. Við kláruðum að setja saman sýninguna okkar um Snædrottninguna. Búningar að klárast einn af öðrum og leikararnir að verða með allt á hreinu. Þar sem stóri salurinn var upptekinn fyrri hluta dagsins urðum við að gera okkur minni sal að góðu til æfinga fram yfir hádegi, en krakkarnir létu það ekki trufla einbeitinguna. Renndum svo gegnum allt saman á sviðinu áður en við hættum.
13. dagur - 24. júní
Lokadagurinn sjálfur runninn upp. Við mættum ekki fyrr en klukkan ellefu í morgun, enda strangur dagur framundan. Það var byrjað á að renna í gegnum allt verkið og snurfusa það sem þurfti. Mikill spenningur var kominn í leikhópnn eftir æfinguna, enda von á áhorfendum á sýningu klukkan tvö. Þá mættu rúmlega fimmtíu börn af leikjanámskeiðum í Grafarvogi. Hópurinn okkar stóð sig með mikilli prýði og gestirnir virtust skemmta sér hið besta. Svo mikill kraftur var í sýningunni að brunavarnakerfi hússins fór í gang að henni lokinni. Klukkan fjögur var svo komið að stóru stundinni, sýningu á Snædrottningunni fyrir foreldra og aðra aðstandendur. Það var fullur salur af áhorfendum og mikli spenna í loftinu. Sýningin gekk vonum frama og fagnaðarlætin mikil að henni lokinni. Þar með er þessu skemmtilega námskeið lokið, við kveðjum frábæran hóp með söknuði og vonumst til að hittast síðar.
|