|
JÓLARÓSIR SNUÐRU OG TUÐRU
byggt á sögum Iðunnar Steinsdóttur
Jólin nálgast og mamma Snuðru og Tuðru ætlar að kenna börnunum í skólanum bútasaum, þannig að þau geti sjálf útbúið sitt eigið jólaskraut. Við kennsluna nýtur hún aðstoðar Theodóru í næsta húsi. En þeim gengur illa að koma sér að efninu, því þær eru alltaf að rekast á eitthvað skondið sem leiðir talið að óþekktarormunum, Snuðru og Tuðru. Þá birtast þær ljóslifandi, en eins og við er að búast gengur jólahaldið ekki snurðulaust fyrir sig þegar þær Snuðra og Tuðra eru annars vegar.
Leiksýningin Jólarósir Snuðru og Tuðru var fyrst á dagskrá hjá Möguleikhúsinu fyrir jólin 2001 og var á sýnd í þrjú ár við miklar vinsældir. Sýningin er nú tekin upp að nýju með nýjum leikurum.
Leikstjóri upprunalegu sýningarinnar var Bjarni Ingvarsson, en umsjón með þessari enduruppsetningu hefur Pétur Eggerz. Búninga hannaði Katrín Þorvaldsdóttir og tónlist er eftir Vilhjálm Guðjónsson. Leikarar eru Anna Brynja Baldursdóttir og Aino Freyja Järvelä.Fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja – 10 ára.
Sýningar hefjast í um mánaðrmótin nóvember/desember.
|