Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Heiðarsnælda
Tveir menn og kassi
Gagnrýni um sýninguna
Myndir úr sýningunni
Hattur og Fattur
Smiður jólasveinanna
Sæmundur fróði
Tónleikur
Landið Vifra
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Ástarsaga úr fjöllunum

Möguleikhúsið kynnir gamanleik fyrir alla fjölskylduna:

TVEIR MENN OG KASSI

eftir Torkild Lindebjerg

Tveir flutningamenn burðast inn með stóran kassa. Þeir eru að leita að einhverjum sem á að taka við honum. Skyndilega fara að heyrast torkennileg hljóð úr kassanum. Hvað skyldi vera í honum?

Þetta er gamanleikur fyrir börn og fullorðna um þann furðulega vanda sem fylgir því að vera manneskja og óbærilegan léttleika tilverunnar.

 

Sýningin er unnin með aðferðum trúðsleikskins þar sem athafnir og líkamstjáning segja meira en orð og mannlegur breyskleiki gerir samskipti persónanna í senn erfiðar og spaugilegar.

 

Sýningin Tveir menn og kassi var tilnefnd til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, sem barnasýning ársins 2004.

 

Höfundurinn, sem jafnframt er leikstjóri og höfundur leikmyndar, er Torkild Lindebjerg frá Danmörku, en þar hefur hann m.a. unnið Odin Teatret, Bådteatret, Turnus, Ålborg Teater, Gladsaxe Teater, Jomfru Ane Teatret og mörgum fleiri, auk þess að vera einn af stofnendum Kaskadeteatret. Hann vinnur mest við leikhús án orða og hefur numið við látbragðsskóla í Bandaríkjunum og París. Hann hefur starfað sjálfstætt frá árinu 1980 sem leikari, dansari og leikstjóri og verið listrænn stjórnandi Teater TT frá árinu 1985. 1986 tók hann þátt í leikhúsverkefni á vegum UNESCO á Bali. Auk þess að hafa ferðast með leiksýningar um Norðurlöndin hefur hann sýnt á Spáni, Ítalíu, Belgíu, Frakklandi. Þýskalandi, Grænlandi, Englandi, Skotlandi, Bandaríkjunum, Japan Ástralíu og Nýja Sjálandi.

 

Leikarar eru Bjarni Ingvarsson, Pétur Eggerz og Stefán Örn Arnarson, sem jafnframt sér um hljóðmynd. Justin Wallace sá um módelsmíði.

 

´Tveir menn og kassi er sýning fyrir áhorfendur á öllum aldri.

Sýningartími er 45 mínútur.

Möguleikhúsið | Sími 562 2669