Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Heiðarsnælda
Myndir úr sýningunni
Gagnrýni um sýninguna
Tveir menn og kassi
Hattur og Fattur
Smiður jólasveinanna
Sæmundur fróði
Tónleikur
Landið Vifra
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Ástarsaga úr fjöllunum

HEIÐARSNÆLDA

saga úr sveitinni

 

Langt inni í landi er lítill sveitabær. Það er bærinn Hamar undir Bröttuhömrum. Þar býr Björn bóndi í friði og ró ásamt húsdýrunum sínum, hvolpinum Tryggi, hænunum sem vappa um á hlaðinu, kúnum í fjósinu, hestunum í haganum og kindunum sem komnar eru upp um öll fjöll. Ekki þó alveg allar, því heimalningurinn, hún Heiðarsnælda, býr heima á bænum með Birni. Þetta er lítil gimbur sem hann fann aleina uppi í fjalli. Þar jarmaði hún og jarmaði, en mamman var hvergi sjáanleg. Björn bóndi varð að taka hana með sér heim til að hugsa um hana, því svona lítið lamb getur ekki bjargað sér eitt uppi í fjalli.

 

Dag einn kemst Björn bóndi að því að Heiðarsnælda er horfin. Hvert getur hún hafað farið? Það er ekki um annað að ræða en að leita að henni, því uppi í fjalli bíða hennar ýmsar hættur. Rebbi á sér greni í urðinni og krummi er alltaf að sveima yfir gilinu. En tekst Birni bónda að finna Heiðarsnældu í tæka tíð?

 

Sýningin er sérstaklega ætluð börnum á leikskólaaldri og í henni er lögð áhersla á að kynna sveitina og dýrin fyrir áhorfendum og skipa leikbrúður og tónlist veglegan sess í sýningunni.

 

Heiðarsnælda er samið af leikhópnum undir leikstjórn Bjarna Ingvarssonar. Leikarinn Pétur Eggerz og tónlistarmaðurinn Stefán Örn Arnarson leika í sýningunni. Baktjöld eru eftir Kjuregej Alexöndru Argunovu, brúður og búningar eru eftir Katrínu Þorvaldsdóttur og Justin Wallace sá um módelsmíði. Auk þess að leika í sýningunni sér Stefán Örn Arnarson um tónlist og hljóðmynd verksins.

 

Heiðarsnælda er ætluð börnum að 8 ára aldri.

Sýningartími er 35 mínútur.

Möguleikhúsið | Sími 562 2669