|
Gagnrýni um Alla Nalla og tunglið úr Fréttablaðinu 13. mars 2009
Fimmtugur í fullu fjöri
Á þessu ári eru liðin 50 ár síðan íslensk börn fyrst kynntust honum Alla Nalla úr samnefndri bók Vilborgar Dagbjartsdóttur. Hrifningin skein úr hverju andliti ungra áhorfenda í Gerðubergi á sunnudaginn þegar pössupíurnar Ólína og Lína sögðu á mjög svo myndrænan hátt söguna um hann Alla Nalla sem vildi ekki borða grautinn sinn og sjálft tunglið gæddi sér á honum í staðinn.
Leikstjórinn Pétur Eggerz hefur fært söguna í leikrænan búning og Messíana Tómasdóttir rammað hana inn í leikmynd sem varð að eins konar leikföngum enda þyrptust áhorfendur upp á svið að sýningunni lokinni til þess að skoða og sjálf koma við allt þetta sniðuga sem fyrir augu bar. Návígi við börnin gerði það að verkum að þátttaka þeirra varð talsverð og ber að fagna því þar sem nokkuð hefur borið á því upp á síðkastið að fjarlægð hefur skapast milli áhorfenda og leikara en hér var því ekki fyrir að fara.
Alda og Anna Brynja eru í skemmtilegum búningum einkum þá Alda sem leikur bæði aðra barnapíuna og mömmu hans Alla Nalla fyrir svo utan að allt í einu birtist hún í líki karlsins í tunglinu. Sýningin var litskrúðug og skapandi, það var örvandi sköpun sem varð til meðan börnin horfðu á. Það eru vafalítið margir sem hafa tekið sér skæri í hönd við heimkomuna og gert nokkrar tilraunir til þess að klippa eins og Alli Nalli gerði þegar hann bjó til sniðugu klippimyndirnar sínar.
Þessi sýning er mjög vel sniðin fyrir alyngstu áhorfendurna frá svona tveggja ára aldri og upp úr.
Notkun litanna í uppfærslunni, bæði í búningunum og myndunum sem upp var brugðið var sérstaklega skemmtileg og skýr. En það er einmitt það að vera skýr sem gerir barnasýningu af þessum toga bæði skiljanlega og skemmtilega. Fylgdarsveinn minn á sýningunni sem er á þriðja ári sagði mömmu sinni frá því þegar heim kom að hann hefði farið í leikhús og séð tunglið. Hann var spurður frekar útí innihaldið og talaði þá fyrst og fremst um að tunglið hefði borðað grautinn, þannig að það er greinilegt að það eru mismunandi atriði sem vekja athygli barnanna. Lítil stelpa tók sérstaklega eftir töfratöskunni þar sem hlutirnir gátu breyst. Vonandi komast sem flest börn á þessa sýningu fyrir utan að eitthvert sprotafyrirtæki gæti tekið að sér að fjöldaframleiða segultöfluna þar sem hægt er að festa upp hluti og persónum sögunnar, þannig að krakkar gætu leikið Alla Nalla heima hjá sér eða í leikskólanum.
Elísabet Brekkan
|