Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Myndir úr sýningunni
Gagnrýni um sýninguna
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Ástarsaga úr fjöllunum

PRUMPUHÓLLINN

eftir Þorvald Þorsteinsson

 

 

Hulda er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum vill ekki betur til en hún villist og ratar ekki heim. Henni líst ekkert á þetta umhverfi þar sem allt er framandi; lyktin er náttúrufýla, grasið stingur og það eru pöddur út um allt!

Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum sem segir Huldu að hóllinn sé í raun pabbi sinn. Hann hafi lent í sólargeisla og orðið að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut. En hundasúrugrauturinn varð ekki að steini. Ónei, hann ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan..maður lifandi!

 

Prumpuhóllinn var frumsýndur í Möguleikhúsinu árið 2002 og sýndur rúmlega 100 sinnum á næstu tveimur leikárum.

 

Leikstjórn Prumpuhólsins er í höndum Péturs Eggerz. Leikmynd og búninga hannaði Messíana Tómasdóttir. Tónlistin er eftir Guðna Franzson. Leikarar eru Pétur Eggerz og Anna Brynja Baldursdóttir.  

Prumpuhóllinn er ætlaður áhorfendum á aldrinum 2ja - 10 ára.

Sýningartími er 47 mínútur.

 

Möguleikhúsið | Sími 562 2669