Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Langafi prakkari
Gagnrýni um sýninguna
Myndir úr sýningunni
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul

Langafi prakkari

 

leikrit eftir Pétur Eggerz

byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.

LANGAFI PRAKKARI verður í Gerðubergi

laugardaginn 25. febrúar  kl 14:00. 

 

Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Leikritið var fyrst sýnt árið 1999 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins. Langafi prakkari sneri aftur í janúarbyrjun 2007 og hefur enn sem fyrr notið miklilla vinsælda. 

 

Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana alltaf á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …

 

Langafi og Anna eru leikin af þeim Pétri Eggerz og Aino Freyju Järvelä, leikstjóri Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir, leikmynd er eftir leikhópinn og tónlist er gerði Vilhjálmur Guðjónsson.

 

 SMELLIÐ HÉR TIL AÐ LESA GAGNRÝNI UM SÝNINGUNA

 

 SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDIR ÚR SÝNINGUNNI

 

 

 

 

 

 

 

 

Möguleikhúsið | Sími 562 2669