Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Myndir úr sýningunni
Gagnrýni um sýninguna
Ástarsaga úr fjöllunum

GÝPUGARNAGAUL

 dsc_0453
Söngkona, sem ef til vill er líka álfkona, og tónlistarmaður, sem kannski er tröll, vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið þegar til þeirra stormar glorhungruð furðupersóna í leit að risa með gullhár, ásamt vini sínum litla snjótittlingnum. Það má með sanni segja að hún setji rólyndislega tilveru þeirra á annan endann með hamaganginum í sér, en spurningin er hvort þeim tekst að hafa hemil á öllum gýpuganginum

dsc_0241Gýpugarnagaul er sýning sem byggð er á gömlum íslenskum munnmælasögum og kveðskap. Við efnissöfnun var víða leitað fanga, í hljóðritasafni Árnastofnunar sem og í rituðum heimildum. Sögum sem lengi hafa lifað í munnlegri geymd er fléttað saman við vísur og kvæði svo úr verður eitt samfellt ævintýri kryddað söng og hljóðfæraleik. Inn á milli má einnig greina brot úr kveðskap skálda eins og Hallgríms Péturssonar og Jóhannesar úr Kötlum.

Hér segir frá Gýpu, sem er sífellt svöng og gleypir í sig allt sem á vegi hennar verður án þess að hugsa um afleiðingarnar. Við kynnumst líka Snæja snjótittlingi sem á ráð undir rifi hverju en breytist í sólskríkju þegar sólin hækkar á lofti, heyrum af risanum ógurlega með gullhárin, prinsessunni Dettiklessu og fleiri furðum. Allt er þetta kryddað með vísum og kviðlingum, söng og leik meðan undir hljómar garnagaul Gýpu.

Á sviðinu eru leikkonan Alda Arnardóttir, söngkonan Þórunn Elín Pétursdóttir og tónlistarmaðurinn Birgir Bragason með stóra kontrabassann sinn. Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Valbergsdóttir, umsjón tónlistar er í höndum Báru Grímsdóttur en leikmynd og búninga hannar Messíana Tómasdóttir. Handritið er eftir Pétur Eggerz og Sigrúnu Valbergsdóttur, en sérlegur ráðgjafi hópsins er Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur og rannsóknarlektor á þjóðfræðisviði hjá Stofnun Árna Magnússonar.  dsc_0311
 

Sýningin er ætluð börnum á aldrinum

2ja - 10 ára

 

Gýpugarnagaul er ferðasýning sem hægt er að fá í heimsókn í grunn- og leikskóla. Upplýsingar um verð fyrir hópa má finna með að smella hér.

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ LESA GAGNRÝNI UM SÝNINGUNA

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDIR ÚR SÝNINGUNNI

Möguleikhúsið | Sími 562 2669