Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Heiðarsnælda
Tveir menn og kassi
Hattur og Fattur
Smiður jólasveinanna
Sæmundur fróði
Tónleikur
Gagnrýni um sýninguna
Myndir úr sýningunni
Landið Vifra
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Ástarsaga úr fjöllunum

Tónleikur

eftir Stefán Örn Arnarson og Pétur Eggerz

Tónleikur er tónleikrit eftir þá Stefán Örn Arnarson og Pétur Eggerz. Um er að ræða nýstárlegt og spennandi leikhúsform þar sem tónlist og leikur er samofið í eina heild. Hér er tónlistarmaðurinn í nýju hlutverki sem bæði leikari og flytjandi tónlistar.

 

Sellóleikarinn er mættur til að halda tónleika. Á efnisskránni er svíta no. 1 í G-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Þegar tónleikarnir hefjast er ekki allt eins og það á að vera. Tónlistarmanninum gengur illa að einbeita sér og hann virðist ekki finna samhljóm milli sín og hljóðfærisins. Áhorfandinn er leiddur um heim þar sem mörk raunveruleika og ímyndunarafls flytjandans eru óljós.

 

Leikstjóri er Pétur Eggerz, Katrín Þorvaldsdóttir hannaði leikmynd og búninga, lýsingu annaðist Bjarni Ingvarsson og á sviðinu er Stefán Örn Arnarson sellóleikari, sem auk þess að vera annar höfunda sýningarinnar hannaði hljóðmynd verksins.

 

Tónleikur er ætlaður áhorfendum frá 9 ára aldri.

Sýningartími er 40 mínútur.

 

Sýningum á Tónleik, í samvinnu við Tónlist fyrir alla, hefur verið frestað til haustsins 2009

 

Í gagnrýni Bergþóru Jónsdóttur í Morgunblaðinu segir m.a.:

 

Hugmynd Stefáns Arnar er skemmtileg. Ekki síst vegna þess að hún leiðir áhorfandann í sannleikann um hvað það getur verið vandasamt að sitja einn á sviði fyrir fullu húsi af áheyrenda. Það er ekkert grín. Látbragðsleikur Stefáns Arnar er liðlega hálftíma langur, og því sniðinn að þörfum skólanna, sem gætu boðið nemendum sínum upp á "kennslustund" í raunum hljóðfæraleikarans. ...Hún ætti þó ekkert síður að höfða til fullorðinna - og kannski sérstaklega tónlistarmanna sem fá þarna gott tækifæri til að skoða sjálfa sig í spéspegli - og þeirra sem sækja tónleika ... Stefán Örn heldur athygli áhorfenda fullkomlega í látbragðinu, og lengd verksins alveg mátulega stutt til þess að halda. ... Þetta var smellin sýning sem sýndi heim tónlistarmannsins í óvæntu og fyndnu ljósi.

 

Í gagnrýni Silju Aðalsteinsdóttur í DV segir m.a.:

 

Þetta er verulega athyglisverð og skemmtileg sýning fyrir eldri áhorfendur en Möguleikhúsið sinnir að jafnaði. Mörg börn kannast við tilfinninguna af því að koma fram fyrir aðra - kannski með efni sem sem þau hafa takmarkaðan áhuga á að flytja - og vandræði Stefáns halda þeim við efnið með því að gera hvort tveggja, skemmta þeim og pína þau. Stefán ræður vel við að vera einn á sviðinu og hélt athygli áhorfenda vandræðalaust ... Óvenjuleg sýning fyrir stálpuð börn sem ástæða er til að mæla með.

Möguleikhúsið | Sími 562 2669