Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Heiðarsnælda
Tveir menn og kassi
Hattur og Fattur
Smiður jólasveinanna
Myndir úr sýningunni
Gagnrýni um sýninguna
Jólakattarlag
lag
jolakottur
Sæmundur fróði
Tónleikur
Landið Vifra
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Ástarsaga úr fjöllunum

Smiður jólasveinanna

eftir Pétur Eggerz

Hátt upp til fjalla situr Völundur gamli í litla kofanum sínum. Völundur er smiðurinn sem sér um að smíða allar gjafirnar sem jólasveinarnir færa börnunum á jólunum. Eftir að síðustu sveinarnir eru farnir til byggða er einmanalegt í kotinu. Þá birtast óvæntir gestir, tröllabörnin Þusa og Þrasi sem aldrei hafa heyrt talað um jólin og sjálfur jólakötturinn, sem þorir ekki lengur að fara til byggða. Völundur tekur vel á móti þeim og saman rifja þau upp söguna af fæðingu Jesú. Þeim þykir sagan svo skemmtileg að þau ákveða að leika hana saman.

 

Smiður jólasveinanna var fyrst sýndur fyrir jólin 1992 og naut þá þegar mikilla vinsælda. Leikritið var síðan gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993. Leikstjóri sýningarinnar er Pétur Eggerz, sem einnig hannaði leikmynd ásamt Bjarna Ingvarssyni, tónlist gerði Ingvi Þór Kormáksson og búningahönnuður Helga Rún Pálsdóttir. Leikarar eru Bjarni Ingvarsson, Aino Freyja Järvelä, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz.

 

 

 

 

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ LESA GAGNRÝNI UM SÝNINGUNA

 

Möguleikhúsið | Sími 562 2669