LANDIÐ VIFRA
Möguleikhúsið kynnir nýtt barnaleikrit, Landið vifra, sem byggt er á hinum vinsælu barnaljóðum Þórarins Eldjárns.
Hér er farin nokkuð óvenjuleg leið í gerð leiksýningar, þar sem í upphafi eru eingöngu lögð til grundvallar þau ljóð sem höfundurinn hefur gefið út í bókum ætluðum börnum. Úrval þeirra ljóða er síðan notað sem grunnur að sýningunni og texti í bundnu máli saminn til að tengja efnið saman þannig að úr verði heildstæð leiksýning.
Sýningin var tilnefnd til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, sem barnasýning ársins 2005.
Við bjóðum ykkur velkomin til Landsins vifra, þar sem persónur úr þessum vinsælu kvæðum leika lausum hala, sperra sín brageyru og láta ljóðin tala. Hér má hitta Guðmund á Mýrum sem borðar bækur, losarann sem allt vill losa, karlinn með orðasugu í eyra og marga fleiri.
Með þessari sýningu gefst tækifæri fyrir skóla og aðra til að efla málvitund barna og opna augu þeirra fyrir þeim möguleikum sem búa í orðum og notkun þeirra. Til að hvetja börnin til að yrkja sjálf, leika sér að rími og möguleikum tungumálsins biðjum við þá sem panta sýningar að láta væntanlega áhorfendur yrkja sín eigin ljóð, sem síðan eru afhent leikurunum í lok sýningarinnar. Þá fer fram einskonar ljóðahappdrætti þar sem nokkur ljóð eftir börnin eru lesin upp.
Atli Heimir Sveinsson hefur samið lög við nokkur ljóðanna sérstaklega fyrir þessa sýningu, en eins og kunnugt er hafa margar perlur í lagasafni hans átt rætur að rekja til tónlistar sem hann hefur samið fyrir leikhús.
Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, leikgerðin eftir leikhópinn en viðbótartexta í bundnu máli samdi Pétur Eggerz. Tónlist er eftir Atla Heimi Sveinsson en útsetningar gerði Guðni Franzson. Leikmynd gerðu þau Bjarni Ingvarsson og Katrín Þorvaldsdóttir, en hún hannaði einnig búninga. Leikarar eru Aino Freyja Järvelä, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ LESA GAGNRÝNI UM SÝNINGUNA
|