Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Heiðarsnælda
Tveir menn og kassi
Hattur og Fattur
Myndir úr sýningunni
Gagnrýni um sýninguna
Myndir frá sýningu á Hatti og Fatti í Lúxemborg
Smiður jólasveinanna
Sæmundur fróði
Tónleikur
Landið Vifra
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul
Ástarsaga úr fjöllunum

Hattur og Fattur og Sigga sjoppuræningi

eftir Ólaf Hauk Símonarson

Möguleikhúsið kynnir nýtt barnaleikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson sem ber heitið Hattur og Fattur og Sigga sjoppuræningi.

 

Það eru þeir Bjarni Ingvarsson og Pétur Eggerz sem fara með hlutverk þeirra kumpána , en Siggu sjoppuræningja leikur Alda Arnardóttir. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson, búningahönnuður er Helga Rún Pálsdóttir en tónlist er eftir Ólaf Hauk. Útsetningar annast Jón Ólafsson.

 

Hér bregða félagarnir Hattur og Fattur á leik í splunkunýju og sprelfjörugu verki. Þeir hafa lent Hinum fljúgandi furðuvagni á góðum stað í bænum þegar grunsamleg persóna kemur aðvífandi. Þetta er engin önnur en Sigga sjoppuræningi sem er á sífelldum flótta undan lögreglunni. Hún er nefnilega alltaf að brjótast inn í sjoppur til að ná sér í gos og nammi. Verkið er kryddað nokkrum nýjum söngvum úr smiðju Ólafs Hauks.

 

Sýningin er ætluð áhorfendum á aldrinum 2ja - 9 ára.

Sýningartími er 45 mínútur.

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ LESA GAGNRÝNI UM SÝNINGUNA

Möguleikhúsið | Sími 562 2669