Forsíða Leiksýningar Um leikhúsið Sumarnámskeið Sýningar í skólum Hafðu samband Tenglar
Næstu sýningar
Eldri sýningar
Langafi prakkari
Aðventa
Alli Nalli og tunglið
Myndir úr sýningunni
Gagnrýni um sýninguna
Íslensku jólasveinarnir
Prumpuhóllinn
Völuspá
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Gýpugarnagaul

ALLI NALLI OG TUNGLIР
Leiksýning byggð á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur

Pössunarpíurnar Ólína og Lína eru mættar til að stytta ykkur stundir næstu þrjá stundarfjórðungana. Þær vita fátt betra en að vera með börnum, fara með þeim í leiki og gera annað skemmtilegt. Þær hafa líka ýmsar sögur að segja af honum Alla Nalla, sem var fyrsti krakkinn sem þær pössuðu. Þó Alli Nalli væri oftast góður og þægur átti hann stundum til að vera pínulítið óþekkur eins og aðrir krakkar. Eins og til dæmis þegar hann harðneitaði að borða grautinn sinn á kvöldin. Þá gaf mamma hans tunglinu grautinn og tunglið stækkaði og stækkaði ...

Bókin um Alla Nalla og tunglið kom fyrst út árið 1959. Það var fyrsta barnabókin sem Vilborg Dagbjartsdóttir skrifaði og jafnframt fyrsta bókin sem kom út eftir hana. Það er því vel við hæfi að fagna fimmtíu ára höfunarafmæli hennar með sviðsetningu á þessu ástsæla verki. Síðar komu einnig út barnabækurnar Sögur af Alla Nalla og Labbi pabbakútur, en það eru einkum þessar þrjár sem leiksýningin byggir á.

 

Leiksýningin Alli Nalli og tunglið var tilnefnd til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, sem barnasýning ársins 2009.

Fyrir áhorfendur á aldrinum 1 til 8 ára

Leikstjóri og höfundur leikgerðar Pétur Eggerz
Leikmynd og búningar Messíana Tómasdóttir
Tónlist Kristján Guðjónsson
Leikarar Alda Arnardóttir og Anna Brynja Baldursdóttir

 

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ LESA GAGNRÝNI UM SÝNINGUNA

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDIR ÚR SÝNINGUNNI

 

 

 


Möguleikhúsið | Sími 562 2669